Um Mátt sjúkraþjálfun ehf.
Sjúkraþjálfarar hjá Mætti sjúkraþjálfun hafa margra ára og víðtæka reynslu. Við hjá Mætti sjúkraþjálfun veitum þeim sem þjást af verkjum í vöðvum og liðum alhliða þjónustu. Markmið okkar er að bæta líðan, hreyfifærni og starfsgetu þeirra sem til okkar leita. Við leggjum áherslu á fræðslu, forvarnir og uppbyggjandi æfingameðferð samhliða meðferð sjúkraþjálfara. Máttur sjúkraþjálfun býður upp á einstaklingsmeðferð og hópaþjálfun fyrir t.d hjarta- og lungnasjúklinga. Við bjóðum einnig upp á þjálfun barna og unglinga með þroskaraskanir, grindarbotnsþjálfun, bakskóla/bakþjálfun og fleira. Aðstaðan er eins og best verður á kosið, vel búinn tækjasalur, lokuð meðferðarherbergi, lokað herbergi fyrir barna- og hópþjálfun.
Sjúkraþjálfarar Mátts sjúkraþjálfunar

Alma Anna Oddsdóttir

Arna Hjartardóttir

Baldur Rúnarsson

Bylgja Elín Björnsdóttir

Hildur Grímsdóttir

Jón Birgir Guðmundsson

Karen Sif Kristjánsdóttir

Sigurður Örn Gunnarsson
